Um okkur

Alda Sjúkraþjálfun er ný sjúkraþjálfunarstöð sem leggur áherslu á virkni, þátttöku og lýðheilsu. Stofnendur Öldu eru með margra ára reynslu og víðtæka þekkingu og mynda þannig öflugt teymi og sterka liðsheild. Alda Sjúkraþjálfun leggur áherslu á að bæta færni, líðan og efla einstaklinga til þátttöku í daglegu lífi. Staðsetning stofunnar er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stofan er útbúin góðum tækjasal, stórum færnisal og meðferðarherbergjum. Gott aðgengi er að stofunni, sem er á jarðhæð. Gengið er inn um aðalinngang Sléttunnar.
Sjúkraþjálfarar

Ágústa Sigurjónsdóttir
Ágústa Sigurjónsdóttir, útskrifaðist árið 2006 frá Háskóla Íslands með B.Sc í Sjúkraþjálfun. Frá útskrift hef ég farið á fjölmörg námskeið til að öðlast sem víðtækasta þekkingu sem nýtist vel í starfi með fjölbreyttum hópi skjólstæðinga. Starfsferill: Sjúkraþjálfarinn í Hafnarfirði 2006-2009, 2011-2017, Gáski 2010-2011, Sjúkraþjálfunin Sporthúsinu 2017-2025. Sjúkraþjálfari meistaraflokks kk í handknattleik FH, Sjúkraþjálfari A-landsliði kvenna í handknattleik, sjúkraþjálfari meistaraflokks kvk í knattspyrnu hjá Breiðablik og starfa nú sem sjúkraþjáfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu.
Netfang:

Elfa Sif Sigurðardóttir
Elfa Sif Sigurðardóttir, útskrifaðist árið 2006 frá Háskóla Íslands með B.Sc í Sjúkraþjálfun. Starfsferill: Sjúkraþjálfun Suðurnesja 2006-2013. Sjúkraþjálfarinn í Hafnarfirði 2013-2025. Frá útskrift hef ég farið á fjölmörg námskeið til að öðlast sem víðtækasta þekkingu. Hef unnið með skjólstæðingum á öllum aldri, bæði í einstaklingsþjálfun og hópaþjálfun.
Netfang:

Jófríður Halldórsdóttir
Jófríður Halldórsdóttir, útskrifaðist árið 2006 frá Háskóla Íslands með B.Sc í Sjúkraþjálfun. Starfsferill: Gáski sjúkraþjálfun 2006- 2015, Sjúkraþjálfun Reykjavíkur 2015-2018. Sjúkraþjálfun Sporthúsinu 2018-2025. Sjúkraþjálfari hjá Breiðablik í knattspyrnu (mfl. kvenna) 2006-2010. Sjúkraþjálfari hjá Leikni í knattspyrnu (mfl. kk) 2006-2008. Sjúkraþjálfari hjá KKÍ á árunum 2006-2011. Sjúkraþjálfari hjá KR í körfuknattleik (mfl.kk) 2008-2012. Sjúkraþjálfari A-landsliði kvenna í knattspyrnu frá 2014. Hef sótt fjölmörg námskeið og öðlast víðtæka reynslu í gegnum árin. Verið með hópaþjálfun og starfað hjá mörgum íþróttaliðum bæði í körfuknattleik og knattspyrnu. Hef alltaf sinnt skjólstæðingum á öllum aldri og tileinkað mér heildræna nálgun í meðferð.
Netfang:

Sigurlaug Jónsdóttir
Sigurlaug Jónsdóttir, útskrifaðist árið 2008 frá Háskóla Íslands með B.Sc í Sjúkraþjálfun. Starfsferill: Sjúkraþjálfun Grensás sumar 2008. Sjúkraþjálfarinn í Hafnarfirði 2009-2017. Sjúkraþjálfun Reykjavíkur 2017-2025. Sat í stjórn faghóps barnasjúkraþjálfara 2011-2014. Sá um námskeið í færniþjálfun barna og unglinga í yngri flokkum FH í knattspyrnu, 2022-2024. Hef sótt mörg námskeið á ýmsum sviðum sjúkraþjálfunar. Hef unnið með skjólstæðingum á öllum aldri, frá ungabörnum til aldraðra, bæði í einstaklingsþjálfun og hópaþjálfun.
Netfang:
Tímatafla


